Það þíðir ekkert annað en að klára
ferðasöguna fyrir ykkur heima..Svo here it
goes:
Mánudaginn var
ég heima veik og bloggaði fyrir ykkur
Þriðjudaginn
mætti ég í skólann þar sem ég var ekki ælandi lengur. Hann
gekk bara mjög fínt að sjálfsögðu. Fengum tvo nýja gaura í
bekkinn, einn frá Þýskalandi og hinn frá Ítalíu. Eftir
skólann hitti ég síðan Viktor og við ákváðum að fara og kíkka
á Louvre safnið fræga. Eftir heljarinnar óþarfa hring í metró
kerfinu vorum við loksins komin fyrir utan safnið which
turned out to be closed! Jábbs safnið er lokað alla
þriðjudaga..haha great! En við gerðum gott úr því að
sjálfsögðu og röltum í staðin niður á Champ Elysée götuna þar
sem við settumst niður á kaffihús og fengum okkur café au
lait því ef þú biður ekki um það færðu kaffi í kaffibolla á
stærð við dúkku-kaffibolla!
Við kíktum
síðan á gamla sigurbogann og nýrri sigurbogann sem eru báðir
alveg ótrúlega flottir og löbbuðum undir þá báða. Gaman að
segja frá því að sigurbogarnir eru bygðir alveg í beina línu
í gegn um París, þegar þú stendur undir gamla sigurboganum og
horfir beint áfram þá sérðu nýrri sigurbogann sem er þarna
lengst í burtu.
Við tókum
svo lestina heim um kvölmatarleitið og mættum heim í hús
akkurat on time þar sem gömul hjón voru komin i mat. Sömu
hjón sem ég fór heim til fyrstu vikuna mína hérna í París
þegar þau buðu mér að koma og tína hindber í garðinum þeirra,
algjör yndi þessar elskur.
Gamli
sigurboginn og sá nýrri þarna í fjarska.
Á
miðvikudaginn skundaði ég að
sjálsögðu í skólann og var mætt 08.45. Átti nefninlega að
mæta í svona loka próf, eða ég hélt það haha. Komst þá að því
að ég misskildi kennarann algjörlega því þetta var í rauninni
próf fyrir þá sem eru að halda áfram í skólanum út júlí, til
þess að sjá hvort þeir geti verið hækkaðir um bekk eða ekki.
En mér gekk bara ágætlega í prófinu, fékk 14.25 af 20. Í
prófi sem við tókum vikunni áður fékk ég síðan 14.50 stig af
20 sem er mjög gott. Held að þú fellur ef þú ert með undir 7
stig.
En eftir
skóla fór ég beint til Les Halles að versla þar sem
útsölurnar byrjuðu þann dag og það var sko algjörlega stappað
af fólki! Hitti síðan Thomas sem var að vinna og spjallaði
aðeins við hann áður en ég hélt áfram að strauja kortið mitt.
Þegar búðirnar loksins lokuðu klukkan 19.00 var ég
glooorhungruð haha tímdi ekkert að stoppa í búðunum til að fá
mér að borða fyrr en þær lokuðu! Ég dreif mig heim og hitti
akkurat á Viktor og Pierre sem voru á leiðinni út að fá sér
eitthvað að borða svo ég rölti með þeim og við fengum okkur
kebab. Hittum síðan Nicholas og Remy og tjilluðum eitthvað
fram eftir kvöldi áður en ég fór heim að
sofa.
Joanne og John sem eru
með mér í skólanum...eru frá the U S and A
Fimmtudagurinn var
enn einn rigningardagurinn. Mér var eitthvað hálf kalt allann
morguninn svo ég dreif mig bara heim beint eftir skóla. Byrjaði þá
á því að slétta á mér hárið upp á nýtt því það var úti um allt
eftir þessa yndislegu rigningu. Var eiginlega komin með nóg af
henni, langaði aftur í sólina! Við Viktor áváðum að elda okkur
kalkúna bringur í hádegismatinn sem tókst svona vel hjá okkur og
svo sat ég úti á svölum í hettupeysu hálf frjósandi úr kulda í
dágóðann hálftíma í einhverjum pælingum. Um fjögur leytið nennti ég
ekki þessari leti lengur og ákvað að drífa mig aftur niður til
Parísar. Byrjaði auðvitað á því að fara inn í kolvitlausa lest og
lenti því hjá effel turninum sem er í
kolvitlausa átt frá staðnum sem ég var að leita af. Veðjaði svo á
línu fjögur í undergroundinu og lenti einhverstaðar hahaha. Labbaði
hugsanlega í rúmann klukkutíma einhverstaðar í miðri París þar til
ég loksins fann verslunargöturnar sem ég var að leita af, klukkan
var þá tæplega 18.00 haha.
Ég hoppaði
inn í H&M og var þar inni þar til það lokaði klukkan
sjö. Fór þá á kassann og ætlaði að borga en
neinei þá virkaði kortið mitt að sjálfsögðu ekki og gellan
neitaði mér að hlaupa í hraðbanka því hún væri að loka
búðinni (hefði tekið mig svona hálfa mínútu, sirka 50 skref
að fara í hraðbankann sem var þarna beint fyrir utan!) svo ég
labbaði út með enga poka og blótaði öllu illu ógisslega
pirruð útí gelluna. Þetta var því frekar misheppnaður
rigningardagur þar sem ég var eiginlega tínd allann daginn,
annaðhvort í lestarkerfinu eða um götur Parísar hahaha

Á röltinu í
París..
And
again..
Á föstudaginn var seinasti dagurinn í
skólanum. Ég hinsvegar fór út fyrr þar sem ég var að drepast
í hausnum og gat ekki fyrir mitt litla líf setið þarna inni
lengur
Fór því útí apótek og reddaði
málunum..fékk mér svo göngutúr um París og fann ótrúlega
krúttlegann matarmarkað þar sem gömlu karlarnir buðu mér
allskonar hnetur og ávexti að smakka hægri vinsti. Endaði með
fullann halda poka af hnetum og jarðaberjum sem ég borgaði um
500 kall fyrir! Ég sumsé ákvað nóttina áður að fara ekki í
roadtrippið með gaurunum þar sem mér veitti ekkert af
seinustu helginni í París.
En jæja ég fór síðan í
Luxemborg garðinn sem er flotti garðurinn rétt hjá skólanum
mínum og settist þar niður í rúmann hálftíma á meðan ég beið
eftir Thomasi. Þegar hann kom ákváðum við að rölta um þar sem
metró kerfið var bilað og ég var en með bilaðann
hausverk..við kíktum aftur á Notre Dame og í garðinn sem er
þarna fyrir aftan kirkjuna. Svo röltuðum við um París og
rákum augun í þrjá gaura sem voru að breakdance úti á götu,
haha það var ótrúlega flott! Settumst svo á kaffihús og
fengum okkur crépes að borða og hringdum í Romain sem er í
fríi einhverstaðar á einhverri eyju að spóka sig fine.
Skunduðum svo inní moll og fórum að shoppast. Kíktum svo að
lokum í bíó á mynd sem ég barasta ómögurlega veit hvað heitir
á ensku né frönsku haha..en hún var svona lala ágæt, fjallaði
um fólk sem var fast í sjónum eftir að hafa hoppað útúr
snekkjunni til að fá sér sundsprett. Var eiginlega frekað
svipuð Open Water myndinni..
Þegar heim var komið var ég
ótrúlega svöng svo við Marie Paule skunduðum útá kínverskann
take away stað og komum heim með allskonar góðgæti. Sátum því
og átum kínamat og spjölluðum fram eftir kvöldi áður en ég
hoppaði upp í
rúm.
Einn af mörgum görðum
í París
Signan
Kastalinn sem er í miðjum
Luxemburg garðinum rétt hjá skólanum
mínum
Það er svo sorglegt hvað
Ísland er ungt land..á engar svona flottar
bygginar
Á laugardaginn vaknaði ég frekar snemma þar
sem ferðinni var heitið í Versali. Pierre sótti mig uppúr
hádegi og við tókum lestina í rúmann klukkutíma eitthvert
suð-austan við París or some. Löbbuðum svo dágóðann spotta
þar til við loksins komum að kastalanum, Pierre greyið
þvílíkt haltur þar sem hann slasaði sig í fimleikum en hann
lét sig hafa það. Já hah hann er í fimleikum!..hann sýndi mér
myndband af sér að gera þvílíku listirnar svona hangandi í
böndum þar sem hann heldur í tvo svona hringi og er svo að
snúa sér í hringi og ég veit ekki hvað..æj þið fattið ..hann
er með klikkaða handleggjarvövða! Anyway við hittum einhverja
þjóðverja á leiðinni sem löbbuðu með okkur þar sem þeir voru
að leita af kastalanum en rötuðu ekki hehe

Kastalinn var geðsjúklega
flottur og ég tala nú ekki um garðinn sem er þarna fyrir
aftann hann. Þarna var hægt að leigja báta og róa um á
vatninu eða leigja hjól til að hjóla um garðinn og sko þú
getur auðveldlega eitt öllum deginum þarna frá 08.00 – 20.00
, í alvöru talað. Veðrið var alveg ágætt, fyrsti dagurinn í
allri vikunni sem var ekki rigning heldur actually sól! Það
var hinsvegar svo ótrúlega stappað af fólki að þegar þú varst
inni í kastalanum gastu ekki labbað á þínum hraða. Ég var svo
að pissa á mig á tímabili en neinei röðin á klósettin var
sirka kílómeter löng! En við Pierre fórum því bara aftur út
eftir sirka klukkutíma inni í kastalanum, fengum okkur
nýkreistann appelsínusafa og röltum um garðinn og spjölluðum
Ég var
komin heim eitthvað um 20.00 leytið og var svo búin á því
eftir daginn að ég nennti engu fyrir mitt litla líf haha. Fór
því út á videoleigu og ætlaði bara að leigja mér spólu og
hafa það nice heima, en neinei allt kom fyrir ekki því
heeelvítis videogaurinn var með eitthvað vesen útaf
membership kortinu svo ég labbaði út með enga spólu. Þá fór
ég bara á Tony’s Pizza og tók með mér pizzu heim. Lagðist svo
upp í rúm og horfði á La LigneVerte (The Green Mile) sem ég
fann eftir mikla leit niðri í stofu og var steinsofnuð rétt
rúmlega miðnætti held ég.
Kastalinn
Og inni í
honum..var reyndar bannað að taka myndir..en já það var stappað af
fólki!
Garðurinn..
..sem var svo geðsjúkur!
Á sunnudaginn naut ég þess að loksins fá að
sofa út og vaknaði ekki fyrr en um hádegi. Þá var meiningin
að drulla mér á fætur og kíkka í Louvre safið, en ég fékk þá
hugdettu að kannski ég ætti að reyna að pakka öllu draslinu
mínu ofaní ferðatöskuna..svona til að tékka á plássinu þar
sem ég ætlaði mér á Champ Elysée götuna á mánudaginn og tékka
á útsölunum þar. Í því fór ég auðvitað að laga til í
herberginu, þurka af, moppa gólfið og áður en ég vissi var
klukkan orðin 17.00 og ég enþá á náttfötunum. Hvað
ferðatöskuna varðar þá hefði ég ekki getað troðið einni hnetu
ofaní hana í viðbót því hún var svo stöppuð haha! Ég var svo
bara eitthvað í tjillinu fram að kvöldmat og eftir kvöldmat.
Þetta var fyrsti dagurinn minn hér í París sem ég fór ekki
útúr húsi og var bara heima að slappa af hahaha, enda var
þetta ósköp notalegt
Á mánudaginn vorum við Viktor vöknuð klukkan
09.00 takk fyrir þar sem ég ætlaði að standa við planið mitt,
að vera komin útúr húsi klukkan 10.00. Ég ætlaði að kíkka í
Louvre safnið en einhverra hluta vegna hafði ég svo enga orku
í það, var bara þreytt. Búin að brasast og skoða svo mikið
síðan ég kom að orkan var öll endanlega búin í líkamanum,
deginum áður en ég fer heim til Íslands hahaha. Ég henti mér
því bara upp í sófa fram að hádegi, en þá dreif ég mig niður
á Champ Elysée að kaupa fótbolta skó handa Arnari og fleira.
Verslaði mér geggggggjaða kápu! Síðan tók ég lestina til Les
Halles og fínpússaði þar allar hillur í búðunum að
sjálfsögðu. Hitti síðan allt í einu Thomas þarna inni og við
löbbuðum nokkra hringi áður en við tókum lestina saman heim
til Ermont þar sem hann ætlaði að kveðja okkur Viktor. It was
a sad occation.
Fór síðan út með Remy og
Nicholas og Viktor um kvöldmatarleitið og við pönntuðum okkur
pizzu og borðuðum hana úti í rigningunni undir tréi á
leikvellinum sem er hérna rétt hjá hahaha. Kíktum svo öll á
barinn og tjilluðum þar seinasta kvöldið mitt í París...í
bili allavegana
;-)
Í dag,
þriðjudag, er svo ööömurlegt veður.
París greinilega unhappy að ég sé að fara þar sem það míííígringnir
svo búið að gera stanslaust í svona fimm
klukkutíma! Morguninn fór allur aðalega
í það að TROÐA draslinu mínu ofaní ferðatöskuna..oh my god ég
sver að enginn af ykkur hefur séð jafn troðfulla yet
ógisslega vel pakkaða ferðatösku áður.
Ég trúi því
engan veginn að ég sé búin að vera hérna í heilann mánuð,
finnst eins og ég hafi komið fyrir tíu dögum. Trúi því ekki
að ég sé á leiðinni heim til Íslands í kvöld þar sem
raunveruleikinn tekur aftur við..er ekkert of spennt. Hefði
alveg viljað vera hérna í mánuð í viðbót..maður er rétt svo
farinn að rata vel í lestar og metró kerfinu, nýfarinn að
fíla sig svona í frönsku menningunni, nýfarinn að skilja
frönskuna betur.....en neinei þá yfirgefur maður
landið.
Rigningin
hefur ekkert verið að spara sig undanfarna tíu
daga..
-
Þetta ævintýri var þó
yndislegt í alla staði. Ég upplifði svo mikið, sá svo mikið,
gerði svo margt, kynntist svo æðislegu fólki... að það hálfa
væri nóg. Og þó það væri ekki nema að stökkva út í bakarí á
kvöldin og kaupa bagett eða út í búð og kaupa rauðvínsflösku
með kvöldmatnum..þá var það alltaf svo gaman, svo franskt
eitthvað. Á eftir að sakna þess big time að vera ekki hér
lengur í sumar. Þó svo ég var mikið af
tímanum ein þá leiddist mér aldrei eins og flestir hefðu
kannski haldið...bara að taka lestina niður til Parísar labba
um borgina, horfa á allar geðveiku byggingarnar, setjast á
kaffihús og fá sé kaffi var nóg til að gera daginn ótrúlega
spennandi. Bara lifa sig inní frönsku
menninguna.
Frakkarnir eru yfir höfuð,
eins og ég hef trúlega nefnt áður, algerir æðibitar. Fyrir
utan þessa occational gaura sem hanga á lestarstöðunum sem
eru pínu creepy ..haha sem minnir mig á setningu sem Alexy
sagði einu sinni við mig á djamminu, hahaha honum var svo
alvara:
“There’s something wrong with the french
society you know..the girls, they are like meat..the guys are like
lions, they are always hungry...”
hahaha yndi.
..flugvélin
kallar..þarf að halda áfram að ganga frá herberginu og kveðja
París. Flugið er klukkan 21.30 í kvöld svo ég verð ekki lent á
íslenskum tíma fyrr en einhvertíman eftir
miðnætti.
Salut et gross
bisous ;**
sjáumst on the other
side.
KNÚS SÆUNN